ÁR ALDRAÐRA
Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt að tileinka árið 1999 öldruðum með yfirskriftinni „Þjóðfélag fyrir fólk á öllum aldri“. Heilbrigðisráðherra Ingibjörg Pálmadóttir er formaður framkvæmdastjórnar sem unnið hefur að undirbúningi vegna þessarar samþykktar S.Þ. Framkvæmdanefnd Heilbrigðisráðuneytisins mun leggja talsverða áherslu á heilbrigðismál almennt hjá öldruðum og hefur sett sér þau markmið að aukin verði samvinna þeirra sem vinna að heilbrigðismálum þeirra, hvatt verður til iðkunnar líkamsræktar og aukin verður forvarnarstarf svo sem vegna beinþynningar.Nauðsynlegt er líka að huga betur að ýmsum málum er snerta aldraða og mætti þar nefna félagsmálin. Margir eiga erfitt með að hætta að vinna og því þarf að undirbúa fólk undir starfslok og koma í veg fyrir einangrun ef nokkur kostur er. Hagsmunasamtök aldraðra spila þar lykilhlutverk að mínu áliti. Þá skiptir máli að aldraðir fái fræðslu um hinar öru tækniframfarir, sérstaklega á sviði samskipta. þá þarf líka að efla fjármálaráðgjöf til handa öldruðum og efast ég ekki um að fjármálastofnanir bæta um betur á árinu.Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt tillögu um stefnumótun í málefnum aldraðra. Fjölskyldu- og félagsmálaráð mun leiða þá vinnu. Stefnumótunina þarf að vinna í góðu samstarfi við félag eldri borgara og aðra þá aðila sem vinna að hagsmunamálum aldraðra. Reykjanesbær hefur keypt fasteignina að Kirkjuvegi 5 og fjarlægt hana af lóðinni. Við það hefur skapast grundvöllur til þess að dusta rikið af gömlum hugmyndum frá fyrri bæjarstjórn Keflavíkur að byggja samskonar hús og er á Kirkjuvegi 11. Jafnvel verður grundvöllur til þess að byggja þjónustubyggingu á milli húsanna eins og var þá inn í myndinni. Ljóst er að nú þegar er talsverð þörf fyrir leiguíbúðir fyrir aldraða í Reykjanesbæ. Samkvæmt nýlegri könnun sem fjölskyldu- og félagsmálaráð gerði vantar 78 tveggja- til þriggja herbergja íbúðir fyrir aldraða til þess að fullnægja þeim biðlista sem þegar er til staðar. Væntanleg stefnumótun Reykjanesbæjar í málefnum aldraðra mun því þurfa að taka mið að húsnæðismálunum sem og öðrum veigamiklum hagsmunamálum aldraðra borgara í Reykjanesbæ.Heilbrigðismál aldraðra á Suðurnesjum eru og verða í brennidepli næstu missera. Nú er verið að byggja D-álmuna langþráðu. Þörfin fyrir hjúkrunarrými er staðreynd og endurspeglast ekki síst í vaxandi þörf fyrir heimahjúkrun og heimaaðstoð og sífellt þyngri sjúklingum á Garðvangi. Garðvangur hefur þar að auki tæplega þau úrræði að geta sinnt þessum vaxandi þyngslum svo vel sé. Samkvæmt samningi Sveitarstjórna á Suðurnesjum og Heilbrigðisráðuneytisins um byggingu D-álmu stendur nú yfir könnun á hagkvæmni þess að sameina Garðvang undir stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Niðurstöðu þeirrar athugunar verða fljótlega kynntar.Kveðja,Skúli Þ Skúlasonforseti bæjarstjórnarReykjanesbæjar