Bygg
Bygg

Mannlíf

Appelsínugula liðið sigraði á Starfshlaupi
Föstudagur 14. mars 2008 kl. 14:45

Appelsínugula liðið sigraði á Starfshlaupi

Hið árlega starfshlaup fór fram í fjórtánda sinn í dag föstudag. Starfshlaupið er orðið að skemmtilegri hefð þar sem nemendur og starfsmenn skólans gera sér glaðan dag. Sjö lið keppa í fjölmörgum greinum og eru útskriftarnemendur fyrirliðar. Starfshlaupið er einskonar boðhlaup sem byggist á tíma og hversu vel nemendur leysa hvert verkefni fyrir sig.
 
Hlaupið hefst í íþróttahúsinu með ýmsum íþróttaþrautum, því næst færist leikurinn í sundlaugina og víðar. Keppnin endar svo í skólanum en þar bíða ýmis áhugaverð verkefni í kennslustofum og á sal skólans þar sem endað er með söng, dans, óvæntum uppákomum og fleiru.
 
Í ár hrósaði appelsínugula liðið sigri eftir spennandi keppni við gula sem höfðu orðið sigurvegarar síðustu tvö skipti.
 
Að sjálfsöðgu var vel fagnað þegar úrslitin voru kunngjörð og má sjá fleiri myndir hér á vf.is síðar í dag.
 
VF-Mynd/ [email protected]  – Frá Starfshlaupinu í FS í dag.
Bílakjarninn
Bílakjarninn