Anna Sigríður sýnir í Saltfisksetrinu
Anna Sigríður Sigurjónsdóttir opnar sýningu í Listasal Saltfisksetursins á morgun, laugardaginn 6. maí. Sýningin, sem mun standa til 21. maí, ber yfirskriftina Dýrið og verður boðið upp á skemmtilega dagskrá á opnuninni, meðal annars léttar veitingar og tónlist.
Opnunarhátíðin hefst kl. 14, en Saltfisksetrið er opið alla daga frá 11- 18.