Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Ameríkanar duglegastir að sækja Duus og Hljómahöll
Laugardagur 19. desember 2015 kl. 13:00

Ameríkanar duglegastir að sækja Duus og Hljómahöll

-vilja geta keypt meiri varning

Á síðasta fundi menningarráðs Reykjanesbæjar voru lagðar fram skýrslur sem Rannsókn og ráðgjöf unnu eftir gestakönnunum sem gerðar voru í Duus Safnahúsum og Rokkasafninu sl. sumar.  Er þetta í annað skipti sem þessar kannanir eru gerðar á þessum stöðum og markmiðið er að átta sig á samsetningu hópanna sem sækja söfnin heim og afstöðu þeirra til safnanna með það í huga að þróa starfsemina í rétta áttir.

Nokkrar athyglisverðar niðurstöður fengust í könnununum s.s. að konur eru í meirihluta gesta á báðum stöðum og gestir Rokkasafnsins eru að meðaltali 15 árum yngri en gestir Duus Safnahúsa. 51 % íslensku gestanna höfðu komið áður í Duus Safnahús en einungis 7 % erlendu gestanna. Flestir erlendu gestanna á báðum söfnum komu frá Norður-Ameríku,  41 % í Duus Safnahúsum og 36 % í Rokkasafni. Bretar og gestir frá Suður- og Mið-Evrópu voru einnig fjölmennir á báða staði. Einnig var spurt hvort og þá hvaðan ferðamennirnir hefðu fengið upplýsingar um söfnin  og ljóst er að ferðahandbækur s.s. Lonely Planet og ýmsir vefir eins og Trip Advisor eru að hafa áhrif.

Báðir staðir fengu hæstu einkunn fyrir þjónustu starfsfólks og áhugaverðar sýningar bæði árin en það sem helst mátti bæta voru safnbúðirnar og merkingar að stöðunum.

Baldur Guðmundsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sagði á bæjarstjórnarfundi sl. þriðjudag að niðurstöður úr þessum könnunum væru ánægjulegar. „Þetta er lúxusvandamál því gestirnir segja okkur að þeir vilji geta keypt meiri varning.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024