Bygg
Bygg

Mannlíf

Alvöru eðlisfræði í Grindavík
Fimmtudagur 25. október 2012 kl. 13:54

Alvöru eðlisfræði í Grindavík

Ein þeirra tilrauna sem alltaf vekja hrifningu nemenda er að láta Mentos detta ofan í gosflösku og sjá áhrifin. Nánast án undantekninga vekur þetta athygli og viðbrögð nemenda. Í eðlisfræðitíma við Grunnskóla Grindavíkur nú nýlega fóru nemendur 8. J með kennara sínum útfyrir kennslustofuna, út úr skólanum til að framkvæma þessa tilraun.

Undirbúningurinn fólst í því að útbúa hólk sem var svipaður að þvermáli og stútur gosflösku, stungin voru göt á ysta lag Mentos sælgætis til að flýta fyrir áhrifum blöndunnar og síðan var efsta lagið tekið úr gosflöskunni, tveggja lítra kókflösku.

Síðan var tilraunin framkvæmd og eins og sjá má af myndum heppnaðist hún með ágætum við mikla hrifningu nemenda og ekki laust við að kennari hafi haft lúmskt gaman af henni líka. Síðan var gerð skýrsla um tilraunina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn