Alma Vestmann útskrifaði sinn síðasta umsjónarbekk
– Skólaslit Myllubakkaskóla
Skólaslit Myllubakkaskóla fóru fram þriðjudaginn 9. júní. Nemendur mættu prúðbúnir á sal skólans þar sem skólastjóri fór yfir það helsta úr skólastarfinu. Kór Myllubakkaskóla söng og nemendur úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fluttu tónlistaratriði. Sér athöfn var fyrir nemendur í 10. bekk þar sem Alma Vestmann útskrifaði sinn síðasta umsjónarbekk úr grunnskóla. Alma ásamt Stefaníu Maríu Júlíusdóttur og Ástu Arnmundsdóttur kvöddu skólann eftir áralangan kennsluferil og hefur Alma starfað við skólann í yfir 30 ár.
Sjá nánar á myllubakkaskoli.is