Þriðjudagur 14. maí 2002 kl. 19:38
Alltaf á vaktinni!

Lögreglumenn á Keflavíkurflugvelli hafa haft í nógu að snúast síðustu tvo sólarhringa vegna háttsettra embættismanna sem streymt hafa til landsins á fund aðildarríkja NATO.Ljósmyndari Víkurfrétta smellti meðfylgjandi myndum af laganna vörðum rétt fyrir komu Colin Powell til Keflavíkurflugvallar í gær.
Fundi NATO mun ljúka á morgun og þá fara höfðingjarnir að stteyma í burtu aftur en hafa vonandi viðkomu í Bláa lóninu, eins og góðum gestum sæmir!