Allt lagt í sölurnar fyrir hlutverk í mynd Clint Eastwoods

Þeir voru mældir í bak og fyrir, ekki seinna vænna að vita málin á þeim þar sem unnið er að búningagerð fyrir skarann. Nauðsynlegt var að vita allt frá ummáli höfuðs til hvaða stærð þeir þurftu af hönskum.
Verið var að leita að aukaleikurum, allir í hlutverki hermanna og verður misjafnt hversu stór hlutverk þeir fá. Sumir þurfa að leika lík meðan aðrir fá stærri hlutverk. Þó verður leitað til atvinnuleikara að mestu með þau töluðu hlutverk sem eru í myndinni, enda mikilvægt að hafa hreiminn réttan.
Þá hafa nú þegar verið haldnar prufur hjá Varnarliðsmönnum þar sem um 60-70 hermenn voru valdir. Að sögn Eskimo var mikilvægt að finna til menn sem kunna réttu handbrögðin þegar kemur að landtöku í myndinni.

Langflestir sem taka þátt í myndinni að vera sáttir við að hár þeirra mun fjúka af og flestir þurfa að vera krúnurakaðir. Nokkrir hárprúðir drengir voru mættir á svæðið og voru þeir ekki á eitt sáttir við að þurfa að láta lokkana fjúka. En eftir sá umhugsun sögðu þeir í kór: „Allt fyrir Clint!“