Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Allt gekk vel á Ljósanótt!
Mánudagur 8. september 2008 kl. 15:32

Allt gekk vel á Ljósanótt!

Ágætu íbúar og gestir. Ljósanótt var haldin í 9. sinn í Reykjanesbæ. Þátttaka nú var óvenju mikil allt frá fimmtudegi og fram á sunnudag. Talið er að á milli 40-45 þúsund manns hafi verið í bænum á hápunkti hátíðarhaldanna.

Vel á 5. hundrað manns lögðu hendur á plóginn við að skapa sýningar, verslun, þjónustu og öryggi svo sem best varð á kosið.

Á 3. þúsund grunnskóla- og leikskólabörn okkar hófu Ljósanóttina og mörkuðu upphaf að fjölmörgum og vel unnum sýningum um allan bæ.

Mikill fjöldi íbúa fékk góða gesti til sín og þannig má segja að hver einasti íbúi hafi haft hlutverki að gegna á þessari mögnuðu hátíð. Þakklæti okkar til þeirra sem lögðu sig fram um að þjóna öðrum með svo margvíslegum hætti á ljósanótt er mikið. Án sýninga og skemmtiatriða, áhugamanna og atvinnumanna, einstaklinga og hópa, heimamanna og aðkomumanna, væri ljósanótt ekki það sem hún er orðin.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Unglingarnir okkar voru til fyrirmyndar, eins og jafnan.

Lögregla og öryggissveitir sinntu starfi sínu af sömu alúð og við þekkjum þau fyrir og leystu verkefni sín frábærlega. Forvarnarhlutverk þeirra var ekki síst frábærlega vel leyst.

Okkur tekst að halda sterku yfirbragði og sérstöðu fjölskylduhátíðar á Ljósanótt. Það gerist eingöngu með mjög samstilltu átaki hundruða aðstandenda og einstakri stjórnun Ljósanæturnefndar og framkvæmdastjóra hennar.

Allir eru sammála um að þessi ljósanótt hafi farið afar vel fram. Umferðin að og frá bænum okkar gekk nú einstaklega vel.

Ljósanæturnefndinni færi ég bestu þakkir fyrir frábært starf.

Hafið öll bestu þakkir fyrir frábæra hátíð og velkomin á Ljósanótt að ári, segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar í bréfi sem birt er á vef Reykjanesbæjar.