HSS
HSS

Mannlíf

Allt á fullu fyrir Ljósanótt
Setning Ljósanætur fer fram í skrúðgarðinum í Keflavík
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
fimmtudaginn 18. ágúst 2022 kl. 09:30

Allt á fullu fyrir Ljósanótt

Undirbúningur fyrir Ljósanótt er í fullum gangi og gengur vel. Hefðbundin dagskrá verður á hátíðinni í ár. Kjötsúpa, heimatónleikar, Ljósanæturball, myndlistarsýningar og hin ýmsu atriði verða á sínum stað rétt eins og áður. Þó verða gerðar breytingar hvað varðar setningu Ljósanætur en hún mun fara fram fimmtudaginn 1. september klukkan 10:30 í Skrúðgarðinum og munu tveir árgangar, þriðji og sjöundi bekkur, úr hverjum skóla taka þátt í setningunni. Hver og einn skóli mun einnig hafa viðburð, hver í sinni útfærslu, á föstudeginum í tilefni Ljósanætur. 
Guðlaug María Lewis, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar, segir það vera fyrirkomulag sem er komið til að vera ef tekst vel til. „Við erum orðinn svo stór bær og það var orðið alveg risa mál að ferja öll börn bæjarins að Myllubakkaskóla. Tvö eða þrjú síðustu skipti hefur þetta verið á eftirmiðdegi í Skrúðgarðinum. Nú ætlum við að taka aftur upp gamla þráðinn nema með færri börnum,“ segir Guðlaug eða Gulla eins og hún er oftast kölluð. 

Hinir ýmsu viðburðir og skemmtun verður í boði um allan bæ. Árgangagangan er meðal þeirra viðburða sem verða á sínum stað eins og áður, enda einn af hápunktum hátíðarinnar. Þá verður einnig boðið upp á kjötsúpu, magnaða flugeldasýningu og atriði sýnd á stóra sviðinu við Hafnargötu. Atriðin eru ekki af verri endanum í ár en á laugardeginum munu Vök, Flott, Birnir og Bubbi Morthens halda uppi stuðinu. Listir og menning er stór partur af upplifun margra á Ljósanótt. Duus safnahús munu bjóða upp á áhugaverðar sýningar. Þá verður listasýningin Sporbaugur/Ellipse á sínum stað í Listasafni Reykjanesbæjar en sýningin var gerð sérstaklega fyrir rými safnsins. Auk þess mun Byggðasafn Reykjanesbæjar opna sýninguna Hér sit ég og sauma fimmtudaginn 1. september kl. 18 í Duus safnahúsum en sýningaropnunin er hluti af dagskrá Ljósanætur. 

Aðspurð hvernig undirbúningurinn fyrir hátíðina gengur segir Gulla: „Það er bara allt að frétta, allt á fullu. Undirbúningi miðar vel áfram, við erum að vinna að fullbúinni hátíð eins og við þekkjum. Með dagskrá frá fimmtudegi til sunnudags og undirbúningur fyrir alla okkar föstu liði eru í gangi. Svo erum við að vonast eftir góðri þátttöku frá íbúum og öðrum. Þetta er svolítið þannig að við búum til umgjörðina í kringum hátíðina og svo þarf fólk að fylla upp í með einhverjum skemmtilegum viðburðum.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Bæjarbúar hjálpast að við að gera góða hátíð enn betri

Miðasala á Heimatónleikana, sem haldnir eru í heimahúsum í Gamla bænum fór fram 12. ágúst og seldust allir miðar upp á örskotsstundu enda mikið af flottu listafólki sem mun koma fram. Heimatónleikarnir verða nú haldnir í sjötta skiptið og má segja að tónleikarnir séu meðal þeirra viðburða sem hafi slegið rækilega í gegn á síðustu árum. Guðný Kristjánsdóttir er meðal þeirra sem standa að viðburðinum og segir hún það ánægjulegt að sjá hve mikill áhugi ríkir meðal bæjarbúa á viðburðinum. „Við fórum með 650 miða í sölu og það er skemmst frá því að segja að þeir fóru á örfáum mínútum, sem er frábært,“ segir Guðný. Í upphafi voru heimatónleikarnir aðeins haldnir í örfáum húsum í Gamla bænum en á síðustu árum hefur það undið upp á sig. Guðný segir viðburði eins og heimatónleikana skapa jákvæða umræðu um samfélagið okkar. „Þetta er hörku vinna og við erum ekki að hagnast neitt á þessu þegar búið er að greiða listamönnum og borga fyrir hljóðkerfi og annað. Mér finnst frábært að fólk sé tilbúið að opna heimili sín fyrir bæjarbúum og þetta hefur gengið svo vel. Fólk hefur sýnt kurteisi, það gengur vel um og listamönnunum finnst þetta líka alveg ótrúlega skemmtilegt „concept“. Þetta er bara svo jákvætt og skapar jákvæða umræðu fyrir samfélagið okkar,“ segir hún. 

Gulla hefur þetta að segja um heimatónleikana: „Það er svona íbúa verkefni, eitthvað sem ekki er á vegum okkar [bæjarins]. Það væri gaman að sjá meira af svona, að fólk taki sig saman og búi eitthvað skemmtilegt til. Það er einmitt verið að búa til nýtt svona verkefni núna, mér finnst það vera ótrúlega spennandi viðbót.“ Hér vitnar Gulla í viðburðinn Í Holtunum heima sem mun fara fram í „Holta hverfinu,“ þó með aðeins öðruvísi sniði en heimatónleikarnir. Viðburðurinn er nýr af nálinni en um er að ræða útitónleika sem haldnir verða föstudagskvöldið 2. september á opnu svæði milli Háholts og Lyngholts í Keflavík. Fram koma Suðurnesjabandið Midnight Librarian, Herbert Guðmundsson og Bjartmar og Bergrisarnir. Miðasala á viðburðinn fer fram á tix.is og byrjar í dag, þann 18. ágúst, og eru 500 miðar í boði. Birgir Már Bragason er einn af skipuleggjendum viðburðarins. Hann segir undirbúninginn hafa gengið vel. „Það er allt eitthvað svo jákvætt við þetta. Það eru allir tilbúnir að hjálpa og það er allt að smella,“ segir Biggi. Þá segir hann hugmyndina að tónleikunum hafa kviknaði á góðra vina fundi. „Við vinirnir hittumst oft í skúrunum hjá hvor öðrum og tökum smá spjall. Einn daginn barst þetta flotta svæði í Holtinu til tals og okkur datt í hug að halda eitthvað svona bara fyrir okkur hópinn. Svo með tímanum og umræðunni ákváðum við að fara alla leið og halda tónleika og þar með bæta í Ljósanætur-flóruna. Það er alltaf verið að tala um að það mætti bæta við viðburðum og færa hátíðina meira inn í bæjarfélagið, svo okkur fannst þetta bara tilvalið,“ segir Biggi. Aðspurður hvernig fólkið í kringum hann sé að taka í þessa nýjung segir hann: „Bara ótrúlega vel! Það kemur verulega á óvart, við vissum náttúrulega ekkert hvað við værum að fara út í en viðbrögðin og undirtektirnar hafa verið frábærar,“ segir hann. Í samtali blaðamanns Víkurfrétta við Guðnýju barst þessi nýi viðburður til tals og hafði hún þetta að segja um hann: „Það er geggjað að einhverjir aðrir séu að gera þetta líka. Við fögnum því að fleiri hverfi séu að koma inn í þetta og hver veit nema þetta gæti endað á einhverju samstarfi milli hverfa.“