Bygg
Bygg

Mannlíf

„Allir sama nú - energí og trú“
Rán Ísold Eysteinsdóttir, Guðný Ósk Karlsdoóttir, Kristjana Benediktsdóttir og Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir ásamt Jóhanni Ívari Björnssyni og Gauta Jóhannssyni.
Miðvikudagur 12. febrúar 2014 kl. 14:50

„Allir sama nú - energí og trú“

Fjórar stúlkur úr Reykjanesbæ taka þátt í söngleiknum Með allt á hreinu.

„Við komum allar úr sínum hvorum skólanum í Reykjanesbæ. Við völdum Versló nánast vegna þessa söngleiks. Ótrúlega margir komu í prufur og mikil eftirsókn um að komast að,“ segja þær Rán Ísold Eysteinsdóttir, Guðný Ósk Karlsdottir, Kristjana Benediktsdóttir og Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir. Þær fara allar með hlutverk í uppfærslu Verslunarskólans á söngleiknum Með allt á hreinu. Rán og Guðný eru í hljómsveitinni Gærunum með Hörpu Sjöfn og leika þar af leiðandi burðarhlutverk. Ingibjörg og Kristjana eru í hópi dansara.

Þær stöllur kynntu, ásamt tveimur skólabræðnum sínum, söngleikinn og sýndu myndband og atriði í Njarðvíkurskóla í hádeginu í dag. Lög úr söngleiknum ómuðu um skólann og mátti sjá starfsfólk skólans taka undir og syngja og klappa með. Nokkrir nemendur stóðu einnig upp og dönsuðu með. Víkurfréttir voru á staðnum og tóku meðfylgjandi myndir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Söngleikurinn var frumsýndur 5. febrúar í Austurbæ og uppselt var á fyrstu þrjár sýningarnar. Stefnt er á ellefu sýningar fram í miðjan mars.

„Allir saman nú - energí og trú...“

Sumir voru alls ekki feimnir og alveg til í að dansa með.

Stöllurnar kynna sig.

Sumir fundu taktinn með iljunum, enda tónlistin grípandi og skemmtileg.

Nemendur Njarðvíkurskóla fylgdust með af athygli.

Troðfullur salur af áhugasömum krökkum.

Myndband um söngleikinn:

VF/Olga Björt