Allir með í jólakveðju frá Myllubakkaskóla
Starfsfólk og nemendur Myllubakkaskóla óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og senda ykkur jólakveðju sem tekin var upp síðustu daga.
Sú hefð hefur skapast að nemendur í 6. bekk hafa sýnt helgileik á sal skólans en í ár hafa þeir lagt mikla vinnu í að færa hann yfir á rafrænt form og má sjá afraksturinn hér.