Allir ættu að hafa Indriða í símanum
Fimm snjöll: Siggeir F. Ævarsson
Siggeir F. Ævarsson upplýsinga- og skjalafulltrúi Grindavíkurbæjar notast mikið við snjallsímann á hverjum degi. Siggeir er sagnfræðingur að mennt og fyrrum menntaskólakennari. Siggeir notar fjölbreytt og skemmtileg smáforrit bæði til gagns og gamans
NBA - Oftast fyrsta appið sem ég opna á morgnana á meðan ég er ennþá að koma mér í gang. Renni yfir úrslit næturinnar og horfi á klippur úr leikjum. Þetta app er stútfullt af efni og ef maður er með League Pass áskrift getur maður horft á leiki í HD, bæði í beinni og endursýningu seinna.
BaconReader - App fyrir vefsíðuna Reddit. Sótti það upprunalega fyrir forvitnis sakir eingöngu út á nafnið þegar ég var að skoða hvað væri til í Play Store sem tengdist beikoni en svo svínvirkar þetta bara.
Goal Tracker - Ég las bók í fyrra sem heitir „1-minutes habits“ sem fjallar um það hvernig maður getur komið sér upp góðum siðum með því að gera þá að vana. Eitt trix sem var nefnt í bókinni var að koma hlutum í sjónræna keðju. Jerry Seinfeld gerði þetta víst þegar hann var að byrja sinn feril sem uppistandari. Þá skrifaði hann efni á hverjum degi og merkti X á dagatal fyrir hvern dag sem hann skrifaði eitthvað. Smám saman myndast „keðja“ sem maður vill helst ekki slíta og þannig heldur maður áfram og áfram. Goal Tracker heldur utan um svona keðjur en í staðinn fyrir að hafa þær á blaði eða dagatali eru þær í símanum. Svo getur maður fengið sendar áminningar ef maður er að gleyma að bæta í keðjuna.
MyFitnessPal - App til að halda utan um hvað maður lætur ofan í sig. Pottþétt leið til að losa sig við aukakílóin, ef maður nennir að leggja á sig smá vinnu við að skrá inn í það. Fullt af íslenskum vörum í gagnagrunninum, sem er kostur.
Endomondo - Ég hef verið að nota þetta lengi til að halda utan um alla hreyfingu, en reyndar skilst mér að allir alvöru hjólreiðamenn noti Strava. Endomondo og MyFitnessPal tala líka saman sem auðveldar manni lífið.
Bónus app: Indriði. Það ættu allir að vera með Indriða í símanum sínum, en það er app sem inniheldur hljóðklippur úr gömlu Fóstbræðraþáttunum. Það er aaaaalveg.