Allar myndirnar frá Þorrablóti Keflavíkur
Sjáðu fjörið í fjölmennu þorrablóti
Þorrablót Keflvíkinga fór fram um liðna helgi þar sem fjölmargir mættu í íþróttahúsið við Sunnubraut og slettu ærlega úr klaufunum. Hér má sjá vegleg myndasöfn frá kvöldinu þar sem Jón Halldór Eðvaldsson og Fannar Ólafsson héldu um veislustjórn á meðan Eurobandið og Ingó Veðurguð sáu um að trylla mannskapinn.
Vel var látið af hinum sívinsæla annáli eins sem veitingar Soho slógu í gegn.