Algjör lúxus að koma fram í Stapa
- Páll Óskar á útisviðinu og í Stapa
Það verður mikið um glamúr og glæsileika á Pallaballi í Stapa á Ljósanótt. „Það er langt síðan ég hef verið á Ljósanótt og því hlakka ég mikið til,“ segir Páll Óskar sem kemur líka fram á útisviðinu eftir flugeldasýninguna á laugardagskvöld. „Þaðan hleyp ég svo í Stapann því ballið þar hefst stundvíslega á miðnætti. Þar massa ég þetta pásulaust til klukkan fjögur um nóttina.“ Með Páli Óskari á sviðinu verða dansarar, sem og bombur, blöðrur og tilheyrandi skraut.
Sýningin „Páll Óskar - Einkasafn poppstjörnu“ hefur staðið í Rokksafni Íslands í Hljómahöll í eitt og hálft ár. Á næstunni verður skipt um tónlistarmann í brúnni og hefur umfang sýningarinnar um Pál Óskar verið minnkað og hún færð á hina svokölluðu Gítarnögl í Rokksafninu, sem er upphækkaður pallur.
Páll Óskar hefur ekki spilað í Stapanum síðan sýningin var opnuð á sínum tíma og hann segir því yndislegt að fá að halda ball núna þegar henni fari að ljúka. Hann segir ljósabúnað og hljómburð í Hljómahöllinni sem því besta sem gerist á landinu og því algjör lúxus að koma þar fram.
Það verður í nógu að snúast hjá poppstjörnunni á laugardaginn því að fyrr um daginn syngur hann í brúðkaupi í Gaulverjabæ og á skemmtun í Garðabæ. „Andlegur og líkamlegur undirbúningur fyrir helgina er hafinn. Ég passa alltaf að sofa vel út, í það minnsta síðustu þrjá dagana fyrir svona stóra törn.“ Laugardagarnir eru yfirleitt þétt bókaðir hjá Páli Óskari og þá vaknar hann klukkan átta og byrjar að hita sig upp og gera sig sætan. „Ég næ þessu alltaf ef ég fæ átta tíma svefn á sólarhring. Það er svo magnað að alltaf þegar ballið byrjar, jafnvel þó að það sé mikið álag á manni og mikið stress baksviðs, þá fær maður alltaf einhverja auka orku þegar talið er í fyrsta lagið. Þá kemur einhver orka sem maður vissi ekki að maður ætti til.“ Hann segir fólkið á ballinu gefa þessa orku, enda séu Pallaböll mikil gleðiböll. „Ég syng lög sem allir þekkja og geta sungið með. Í því liggur þessi ofsalega fallega orka.“
Miða á Pallaballið má nálgast á tix.is og hljomaholl.is.