Bygg
Bygg

Mannlíf

Alexandra Chernyshova í Salnum
Miðvikudagur 21. apríl 2004 kl. 22:48

Alexandra Chernyshova í Salnum

Alexandra Chernyshova, sópran og Gróa Hreinsdóttir, píanó, halda tónleika í Salnum þriðjudaginn 27. apríl kl. 20:00. Auk þeirra spilar einnig Dagmar Kunakova á selló í einu lagi, Mein Glöbiges herze. Tónleikarnir bera nafnið Söngvalind, með vísan í fallega og fjölbreytta dagskrá tónleikanna og uppruna laganna. Miðaverð á tónleikanna er kr. 2000, kr. 1500 fyrir eldri borgara.
Þetta er fjórðu og síðustu tónleikarnir þeirra Alexöndru og Gróu að þessu sinni en á hinum þremur hafa viðtökur verið mjög góðar og mikil ánægja verið með flutning og dagskrá þeirra, m.a. hafði Ríkharður Örn tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins þetta að segja um söng Alexöndru “Í rödd söngkonunnar birtist í senn fágætt og fallegt hljóðfæri....”.

Efnisskrá tónleikanna saman stendur af tólf fjölbreyttum lögum, á átta tungumálum. Níu aríur frá mismundandi óperum, tvö rómantísk lög og eitt þjóðlag.
Dagskráin skiptist í tvo hluta, fyrri hlutinn byggist upp af rómantískum lögum/aríum úr kirkjutónlist og óperum, í seinni hlutanum eru nútímalegri aríur.

1. W. A. Mozart.  ALLELUIA  úr mótettunni   “EXSULTATE JUBILATE”
2. J. S. Bach  Ch. Gounod.  AVE MARIA.
3. G. Verdi. Aría GILDU úr óperunni “RIGOLETTO”.
4. S. Rachmaninov, texti eftir G.Galinoy.”ZDES HOROSHO”.
5. A.Vlasov, ljóð eftir A.Pushkin.  ”FONTAINE IN BAHCHISARAY CASTLE”
6. J. S. Bach. MEIN GLÖBIGES HERZE, kantata nr. 68 fyrir söng, píanó og selló.
Hlé
7. G. Meyerbeer. Cavatine  PAGE URBAIN úr óperunni “LES HUGUENOTS”.
8. F. Lehár. LEID vom WALDMAGDELEIN úr óperunni  “DIE LUSTIGE WITWE”
9. J. Turina, texti eftir R.de Campoamor  CANTARES úr “POEMA EN FORMA DE CANCIONES”
10. P. Tchaikovsky. Ar’ian IOLANTHA úr óperunni “IOLANTHA”
11. G. Gershwin. CLARA´S  LULLABY  úr óperunni “PORGY AND BESS”.
12.    O. Chishko. ÚKRAÍNSKT ÞJÓÐLAG. “ Spat meni ne hochetsya”.



Besta nýja óperuröddin árið 2002 í keppninni “Nýtt nafn í Úkraínu”

Alexandra er fædd í Kiev, Úkraínu árið 1979. Hún lauk tónlistaskóla, píanónámi, árið 1993. Þaðan fór hún í söngnám í tónlistaháskólanum Glier í Kíev, því námi lauk árið 1998. Frá árinu 1998 til 2000 söng hún sem einsöngvari með Úkraínsku sinfóníuhljómsveitinni í útvarpi í Kiev. Frá árinu 1999 til 2003 stundaði Alexandra söngnám í söng akademíunni Nezdanova, Odessu / Úkraínu, kennari hennar þar og um leið yfirkennari söngdeildar var prófessor Galina Polivanova. Auk þess að ljúka þessu námi þá útskrifaðist hún líka úr háskóla á sama tíma þar sem áherslan var á tungumál, enska og spænska, og heimsbókmenntir. Í apríl, árið 2002, var Alexandra valin besta nýja óperuröddin í keppninni “Nýtt nafn í Úkraínu”. Haustið 2003 söng hún einnig einsöng með þekktum karlakór í Úkraínu, Boyan.

Gróa Hreinsdóttir, píanóleikari

Undirleikari er Gróa Hreinsdóttir. Gróa er fædd árið 1956. Hún lauk píanókennaraprófi og prófi í kórstjórn frá Tónlistaskólanum í Reykjavík vorið 1982. Gróa stundaði einnig söngnám við tónlistaskólana í Keflavík og Njarðvík og Tónlistaskólann í Reykjavík.
Gróa hefur sótt námskeið í kórstjórn hjá Herði Áskelssyni, Willie Traader, John Höjby og Sue Ellen Paige.  Gróa kenndi við Tónlistaskóla Njarðvíkur frá 1976 til 1984, Tónlistaskóla Skagafjarðarsýslu 1982-1983, var skólastjóri Tónlistaskóla Vatnsleysustrandarhrepps 1984-1985, kenndi við Tónlistaskóla Keflavíkur frá 1976 og Tónlistaskóla Gerðahrepps frá 1995-1997.
Gróa hefur verið organisti við Ytri-Njarðvíkurkirkju í 9 ár, stjórnað fjölmörgum kórum undanfarin ár.
Bílakjarninn
Bílakjarninn