ALDAMÓT 1999-2000
Veitinga- og skemmtistaðir á Suðurnesjum verða með ýmsar uppákomur um áramótin og í byrjun janúar. Þetta er sá tími árs sem fólk vill gera sér dagamun í mat og drykk og skemmta sé í góðra vina hóp. Glæsilegur nýársfagnaðurá veitingahúsinu GlóðinniGlóðin verður með nýársfagnað þann fyrsta janúar þar sem boðið verður uppá girnilega rétti af sérstökum nýársmatseðli. Fyrst verður boðið uppá fordrykk í glerskálanum og síðan verður glæsileg flugeldasýning. Að henni lokinni getur fólk smakkað á framandi smáréttum. Á efri hæðinni verður borin fram 7 rétta lúxusmáltíð og skemmtiatriði. Ásbjörn Pálsson, yfirmatreiðslumaður, sagði að eftirrétturinn kæmi örugglega á óvart því hann er sérpantaður frá Frakklandi og er með sérstöku aldamótaívafi. Þegar allir eru orðnir mettir mæti hljómsveit á svæðið og skemmtir fólki langt fram eftir morgni. Eftir 1. janúar getur fólk komið á Glóðina og gætt sér á réttum af sjávarréttahlaðborðinu en Ásbjörn sagði að nauðsynlegt væri að leyfa fólki að ná sér eftir allt kjötátið um hátíðarnar.Ógleymanlegt ball íStapa um áramótinÍ Stapa verður ball aldarinnar á nýársnótt en þar munu Land og synir leika undir trylltum dansi þar til sól rís í austri. Jón Harðarson, veitingamaður sagði að hann gæti lofað því að þetta yrði óleymanlegt ball en gestum verðu komið rækilega á óvart. Fleiri voru þau orð ekki svo fólk verður bara að mæta í Stapann og upplifa ævintýralega stemmninguna í eigin persónu. Töfrar á Ránni á nýju áriRáin lætur ekki sitt eftir liggja í skemmtanahaldi um áramótin og á nýárskvöld. Húsið opnar klukkan hálf eitt eftir miðnætti á gamlársnótt og þá mun hljómsveitin Hafrót kynda undir gestum staðarins. Björn Vífill Þorleifsson, veitingamaður á Ránni, sagði að hann gæti lofað fólki frábærri skemmtun og góðum mat af hátíðarmatseðli á nýárskvöld. Kynnir kvöldsins verður Arnar Jónsson leikari, Jónas Þórir leikur dinner tónlist við borðhaldið og söngkonan Margrét Árnadóttir skemmtir gestum með fögrum söng við undirleik Jónasar Þóris. Bjarni galdramaður mun einnig stíga á stokk og skemmta gestum Ráarinnar með gríni og töfrum. Hljómsveitin Hafrót sér síðan um að halda uppi stuðinu fram undir morgun. Vífill sagði að fólk yrði að panta sér borð í tíma og mæta í spariklæðnaði.SSSól í Festi á gamlárskvöldHelgi Björnsson verður í fararbroddi með sveit sína SSSól í Festi í Grindavík á gamlárskvöld. Búist er við miklum fjölda í þetta fornfræga félagsheimili um aldamótin en þar eins og annars staðar verður dansað fram undir morgun.