HSS
HSS

Mannlíf

Albert Albertsson dró fánann að húni í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 17. júní 2009 kl. 19:40

Albert Albertsson dró fánann að húni í Reykjanesbæ


Það kom í hlut Alberts Albertssonar, aðstoðarforstjóra HS orku hf., að draga þjóðhátíðarfánann að húni í skrúðgarðinum í Reykjanesbæ í dag. Hefð er fyrir því að draga fánann að húni í skrúðgarðinum kl. 14 á þjóðhátíðardaginn. Áður höfuð skátar úr Heiðabúum komið með fánann, sem er sá stærsti á Íslandi, í myndarlegri skrúðgöngu undir lúðrablæstri og trommuleik frá lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Meðfylgjandi myndir voru teknar við athöfnina í dag.




Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson



Nafn Alberts Albertssonar hefur verið ritað á stein í skrúðgarðinum til heiðurs þeim sem draga fánann að húni. Árni Sigfússon bæjarstjóri og Valgerður Guðmundsdóttir menningarmálastjóri fylgjast með.

Bílakjarninn
Bílakjarninn