Airwaves í Bláa lóninu - Blue Lagoon Chill
Blue Lagoon Chill er árviss viðburður Airwaves tónlistarhátíðarinnar. Tónlistin var í höndum DJ Margeirs. Einnig komu fram Human Woman sem eru þeir Gísli Galdur og Jón Atli og kom húladansmærin Beka fram með Human Woman. Hún er frá Berlín og dvelur hér á landi í tvær vikur. Daníel Ágúst úr Gus Gus kom einnig fram og fékk hann gríðarlega góðar viðtökur hjá gestum.
Eins og myndirnar sem Bláa lónið sendi til Víkurfrétta sýna var stemningin afar góð.
Fleiri myndir í myndasafni Víkurfrétta hér á vf.is