Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Áhugaverðir tónleikar Jazzfjelags Suðurnesjabæjar með hljómsveitinni Látún
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 25. október 2021 kl. 15:12

Áhugaverðir tónleikar Jazzfjelags Suðurnesjabæjar með hljómsveitinni Látún

Fimmtudaginn næstkomandi mun hljómsveitin Látún halda tónleika í Bókasafni Suðurnesjabæjar í Sandgerði að undirlagi Jazzfjelags Suðurnesjabæjar.

Látun er sjö manna hljómsveit sem er skipuð sex blásurum og einum trommara – og dregur hljómsveitin nafn sitt af þessari hljóðfæraskipan en látún er íslenska orðið yfir „brass“. Tónlist Látúns hefur verið lýst sem „dansvænni gleðitónlist“ sem dregur áhrif úr ýmsum áttum; Funk, Ska, Klezmer, jafnvel smá djass, diskó og sýrurokk. Sveitin var að gefa út sína fyrstu plötu, sem er samnefnd sveitinni, og eru átta af af tíu lögum plötunnar eftir meðlimi Látúns. Tvö tökulög eru á plötunni, Vegir liggja til allra átta eftir Sigfús Halldórsson en þessi útgáfa Látúns prýddi upphafssatriði kvikmyndarinnar Síðasta Veiðiferðin sem sló eftirminnilega í gegn á síðasta ári, hitt tökulagið er Ave Eva sem Magga Stína syngur á sinn einstaka hátt. Lagið er eftir Megas og var útsett sérstaklega fyrir gestaflutning Látúns á Megasartónleikum Möggu Stínu sem haldnir voru í Eldborgarsal Hörpu árið 2019. Það er einnig eina lagið sem er sungið á plötunni.

Platan var tekin upp „live“ á einni helgi vorið 2020 í Stúdíó Sýrlandi af Haffa „Tempó“ Karlssyni en hann sá einnig um alla eftirvinnslu. Látún kemur bæði út á vínyl og geisladiski og er komin í hljómplötuverslanir auk þess sem hún er aðgengileg á streymisveitum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Látún skipa:
Eiríkur Stephensen (barítónsaxófónn og slagverk) en hann er einnig aðallagahöfundur sveitarinnar, Fjalar Sigurðarson (túba), Halldóra Geirharðsdóttir (altósaxófónn), Hallur Ingólfsson (trommur), Sólveig Morávek (tenórsaxófónn), Sævar Garðarsson (trompet og Flugelhorn) og Þorkell Harðarson (altósaxófónn og klarinett).

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og eins og vanalega er aðgangur ókeypis en panta þarf sæti með því að senda tölvupóst á [email protected]