Áhugaljósmyndarar sýna í Svarta pakkhúsinu
Félagar í áhugaljósmyndaklúbbnum Ljósopi hafa í dag sýnt myndir á frístundahátíðinni í Reykjaneshöll. Kennir þar margra góðra grasa og ljóst að Suðurnesin eiga marga efnilega ljósmyndara.
Þegar sýningu lýkur í Reykjaneshöll verður hún flutt í Svarta pakkhúsið og verður opin þar einhverja næstu daga á opnunartíma hússins. Áhugaverð sýning sem vert er að skoða.
Þegar sýningu lýkur í Reykjaneshöll verður hún flutt í Svarta pakkhúsið og verður opin þar einhverja næstu daga á opnunartíma hússins. Áhugaverð sýning sem vert er að skoða.