Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Mannlíf

Áhrifamikil ljósmyndasýning á Bókasafni Reykjanesbæjar (myndskeið)
Föstudagur 5. október 2018 kl. 06:00

Áhrifamikil ljósmyndasýning á Bókasafni Reykjanesbæjar (myndskeið)

Opnun ljósmyndasýningarinnar BLEIK og afhending Bleiku slaufunnar var þann 28. september í Bókasafni Reykjanesbæjar. Sýningin byggir á persónulegum sögum tólf kvenna sem hafa greinst með brjósta- eða leghálskrabbamein.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Sýningin endurspeglar áherslu Bleiku slaufunnar 2018 þar sem lögð er sérstök áhersla á hvatningu til kvenna um að mæta í skimun fyrir brjósta- og leghálskrabbameinum og að vinahópar og vinnustaðir hvetji og styðji sínar konur.

Sýningin mun standa yfir bleika október og hvetur Krabbameinsfélag Suðurnesja fólk til að kíkja á þessa mögnuðu sýningu með mögnuðum konum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn