Ágóði skötumessu til fatlaðra barna og unglinga
Skötumessan 2012 verður haldin í Miðgarði, sal Gerðaskóla í Garði miðvikudaginn 18. júlí nk. og hefst kl. 19:00. Að venju er gert ráð fyrir miklum fjölda gesta til að borða hæfilega kæsta skötu, saltfisk, plokkfisk og tilheyrandi meðlæti. Eins og áður er vegleg skemmtidagskrá þar sem fram koma harmonikuunnendur af Suðurnesjum, Eyjabandið, Siggi á Háeyri, Jón Berg og fl. gott fólk. List án Landamæra flytja tónlistaratriði úr Brúðkaupsnóttinni, Páll Rúnar Pálsson bassasöngvari frá Heiði í Mýrdal, Árni Johnsen, Einar Mikael sýnir ótrúlegar sjónhverfingar, Björn Björnsson fv. skólastjóri fer með gamanmál, Jóhannes Kristjánsson eftirherma og Guðni Ágústsson fv. ráðherra verður veislustjóri. Þeir eiga eflaust eftir að herma hvor eftir öðrum félagarnir þegar þeir fá þetta einstæða tækifæri til að tala saman. Nú er tækifærið fyrir fólk að sjá og heyra hvor nær Guðna betur, Guðni eða Jóhannes. Það kemur í ljós á Skötumessunni 2012.
Eins og áður rennur hagnaður Skötumessunnar að mestu til styrktar fötluðum einstaklingum og félagasamtökum þeirra. Félagar frá íþróttafélagi fatlaðra á Suðurnesjum NES og Knattspyrnufélaginu Víði hafa aðstoðað við framkvæmd messunnar eins og starfsmenn frá Vinnuskólanum í Garði sem hafa aðstoðað við að undirbúa Miðgarð fyrir veisluna og vonandi verður svo áfram. Frá upphafi hafa Fiskmarkaður Suðurnesja og Skólamatur ehf. verið helstu stuðningsaðilar Skötumessunnar og engin breyting verður á því í ár og er þeim enn og aftur þakkaður stuðningurinn.
Styrkir frá Skötumessunni 2011, voru afhentir á Bessastöðum af forseta Íslands, þriðjudaginn 23. ágúst 2011. Alls voru afhentir styrkir að upphæð kr. 850.000 krónur og hlutu eftirtaldir aðilar styrk: Íþróttafélagið NES, Á allra vörum, Jón Margeir Sverrisson sundmaður í Kópavogi, Hallfríður Reynisdóttir og sjálfboðaliðar á Garðvangi.
Styrkina fá þeir sem með einum eða öðrum hætti sinna störfum fyrir sjúka og fatlaða.
Öllum þeim er tóku þátt í Skötumessunni í Garði 2011er þakkað fyrir stuðninginn, hvort heldur var í framlögðu hráefni, framlagi í skemmtidagskrá og ekki síður vinnu og hvatningu með margskonar stuðningi við verkefnið. Helstu stuðningsaðilar 2011 voru:
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, Skólamatur ehf, Axel Jónsson, Víkurfréttir, Fiskmarkaður Suðurnesja, Sveitarfélagið Garður, Saltver ehf., H. Pétursson fiskverkun í Garði, Íslenskir sjávarréttir, Petrína Sigurðardóttir, Guðlaug Helga Sigurðardóttir, Jóna Hallsdóttir, Theodór Guðbergsson, Ingunn Pálsdóttir, Árni Johnsen, Halldór Einarsson, Henson, Hreimur, Bjartmar Guðlaugsson, Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson, Kolfinna Baldursdóttir og fl.