HSS
HSS

Mannlíf

Agnar er dásamlegur leikari
Föstudagur 3. febrúar 2012 kl. 13:43

Agnar er dásamlegur leikari

Margrét Pálsdóttir er einn af liðsmönnum Grindvíkinga í Útsvari en þeir takast á við Skagfirðinga í sjónvarpinu í kvöld. Víkurfréttir slógu á þráðinn til Margrétar og spurðu hana m.a. um ferð Grindvíkinga í 8-liða úrslitin í þessum vinsæla spurningaþætti.

Margrét segist ekkert hafa velt því fyrir sér hvort að liðið kæmist þetta langt þegar Útsvarið fór af stað en fyrst og fremst ætlaði hún sér að hafa gaman af þessu og njóta þess að vera með. „Við höfum virkilega gaman af því að vera saman. Þetta eru svo skemmtilegir strákar sem eru með mér í liði,“ segir Margrét.

Hún segir liðið hittast reglulega og fá sér súpu saman en ekki sé mikið um svokallaðar æfingar. „Við leikum aðeins en Agnar er alveg dásamlegur leikari, ég vona að við komumst áfram í kvöld, þó það væri ekki nema fyrir það að Agnar fengi að leika meira fyrir þjóðina,“ segir Margrét og skellir upp úr. Margrét er á því að liðsheildin og stemningin sé alveg jafn mikilvæg og að vita svörin við spurningunum, þótt það saki nú ekki að vita svörin við einhverju sem fólk heima í stofu veit ekki.

Ekki vottar fyrir taugatitringi hjá Margréti en hún hlakkar til að mæta í sjónvarpssal í kvöld og takast á við lið Skagfirðinga sem er eingöngu skipað kvenmönnum þetta árið. „Ég er svo glöð yfir því að það sé lið með þremur frábærum konum í keppninni. Það yrði frábært ef við ynnum í kvöld en sömuleiðis yrði gaman ef þær kæmust áfram, því það myndi hvetja konur til þess að taka meira þátt í spurningakeppnum yfir höfuð,“ þannig að hvernig sem fer í kvöld þá verður Margrét sátt. Hins vegar eru miklir keppnismenn í hennar liði og stefnt er á sigurinn.

„Maður finnur mikinn stuðning frá Grindvíkingum og víðar. Það er ótrúlegt að fólk sem maður hittir á förnum vegi heilsar manni. Það er ósköp notalegt ef fólk hrósar manni og spyr hvenær við séum næst í sjónvarpinu.“

Margrét segir Útsvar vera skemmtilegan og vel heppnaðan þátt og hún mælir hiklaust með því að fólk taki þátt ef það er beðið um að vera með. Svo tekur hún það fram að lokum að Grindvíkingar séu fulltrúar Suðurnesja í keppninni og ætli sér að gera sitt besta í kvöld.



Hér á myndinni má sjá Margréti lengst til hægri ásamt systkinum sínum í Bakkalábandinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn