Afródans með Orville
				
				
Kraftmikill afródanstími við heitan trommuslátt verður næstkomandi þriðjudagskvöld 30. mars kl. 20:30 í Púlsinum í Sandgerði. Afró er ekki bara skemmtileg útrás, heldur eykur afródansinn líka orku, styrk og þol. Púlsinn ævintýrahús hefur boðið upp á afródans frá byrjun við miklar vinsældir og fær nú gestakennara, sjálfan dansmeistarann Orville í heimsókn, sem er aðalkennari Kramhússins. Orville Pennant kemur frá Jamaika og krafturinn sem fylgir honum svíkur engan, hvorki karl né konu. Það eru allir velkomnir þetta afródanskvöld í Púlsinn. Nánari upplýsingar og skráning er í s. 848-5366 og á  www.pulsinn.is
				
	
				
					
						
					
					
						
					
				
				
				 								
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				