Áframhald listamannaspjall 13. október kl. 14
Sunnudag 13. október kl. 14 verður listamannaspjall með Gunnhildi Þórðardóttur þar sem hún segir frá sýningu sinni Áframhald í Listasafni Reykjanesbæjar. Á sýningunni eru ný verk öll unnin á þessu ári en titill sýningarinnar vísar í áframhaldandi þróun á verkum Gunnhildar og til þeirra efna sem verkin eru gerð úr. Á sýningunni eru tvíð og þrívíð verk sem ýmist eru unnin úr fundnum hlutum eða tilfallandi efni og afskurði eins og timbri, bárujárni og textíl enda sjálfbærni ofarlega í huga hennar. Gunnhildur sækir innblástur til bernskuáranna í Keflavík, hluti tengda sjómennsku, náttúru og mannvirkja á Reykjanesinu.
Sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannsdóttir myndlistarmaður.
Gunnhildur lauk BA (Honours) í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama skóla árið 2006. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar meðal annars Minningar í kössum í Flóru á Akureyri sl. vor auk þess að taka þátt í samsýningu í Listasafni Íslands í maí sl. Þá tók hún þátt í myndbandsgjörningi í Tate Britain á síðasta ári sem stjórnað var af Tracly Moberly myndlistarmanni. Sýningin stendur til 27. október en safnið er opið virka daga kl. 12.00-17.00 og um helgar kl. 13.00-17.00. Að venju er aðgangur ókeypis.