Áframhald - fjölskyldusmiðja í Listasafni Reykjanesbæjar í dag
Í dag, laugardaginn 21. september kl. 14-16, verður boðið upp á fjölskyldusmiðju í tengslum við sýninguna Áframhald í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum. Gunnhildur Þórðardóttir listamaður sýningarinnar mun leiða fjölskyldur og stýra listsmiðju með sýninguna sem innblástur. Á sýningunni eru tvívíð og þrívíð verk sem ýmist eru unnin úr fundnum hlutum, tilfallandi efni og afskurði eins og timbri, járni og textíl en listamaðurinn sækir innblástur til bernskuáranna í Keflavík.
Gunnhildur lauk BA í listasögu og listum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama skóla árið 2006. Sýningin stendur til 27. október en safnið er opið virka daga kl. 12.00-17.00 og um helgar kl. 13.00-17.00. Ókeypis aðgangur.
Sjá nánar um sýninguna á vefsíðu Listasafn Reykjanebæjar www.reykjanesbaer.is/listasafn