Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Áfram Rokkstokk
Þriðjudagur 4. október 2011 kl. 12:58

Áfram Rokkstokk

Rokkstokk 2011 fer fram í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ laugardaginn 29. október. Þar gefst tónlistarfólki á aldrinum 13-25 ára tækifæri til að koma fram við bestu aðstæður í skemmtilegri hljómsveitarkeppni. Það komast einungis 15 atriði að á Rokkstokk 2011 svo að það tónlistarfólk sem vill taka þátt þarf að bregðast fljótt við. Hægt er að skrá sig til þátttöku og fá nánari upplýsingar á heimasíðunni www.rokkstokk.net.

Rokkstokk 2011 fer fram á vegum SamSuð, sem er samstarfsvettvangur félagsmiðstöðva á Suðurnesjum, og er styrkt af Menningarráði Suðurnesja. Samstarfsaðili er Rás 2 sem mun taka upp Rokkstokk 2011 og verður afraksturinn sendur út í þættinum Skúrnum. Veitt verða vegleg peningaverðlaun fyrir fyrsta sæti auk þess sem áhorfendur í sal munu velja eina hljómsveit sem mun fá sérstaka viðurkenningu.

Hljómsveitarkeppnin Rokkstokk fór fram á vegum Félagsmiðstöðvarinnar Ungó í Félagsbíói árin 1997-1999 en lagðist svo af. Margir tónlistarmenn sem síðar hafa látið mikið að sér kveða fengu þar dýrmæta reynslu. Félagsmiðstöðvarnar á Suðunesjum endurvöktu keppnina 2010 og vilja með þessu framtaki leggja sitt af mörkum til þess að svæðið haldi áfram að vera uppspretta hæfileikraríkra tónlistarmanna sem vekja athygli á landsvísu.

Hljómsveitin SkyReports frá Reykjanesbæ sigraði á Rokkstokk 2010. Keanu lenti í öðru sæti og Reason To Belive var valin besta hljómsveitin af áhorfendum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024