Áfram notalegt í nóvember í Eldey
Það verður áfram notalegt í nóvember í Eldey frumkvöðlasetri en þar verður opið hús hjá hönnuðum og frumkvöðlum í húsinu á fimmtudögum þar sem kynnast má fjölbreyttri starfsemi í húsinu.
Boðið verður upp á pop-up markað fjölda hönnuða af svæðinu en einnig taka þátt Maris hönnunarklasi Suðurnesja og hönnunarbúðin Kommisary verður opin. Þá verða vinnustofur hönnuða og frumkvöðla opnar og fiskland býður upp á nýstárlegar kræsingar auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar og lifandi tónlist.
Krabbameinsfélag Suðurnesja selur miða í happdrætti en dregið verður úr veglegum vinningum lokakvöldið. Meðal vinninga má nefna hótelgistingu, leikhúsmiða, heilsuvörur og snyrtingu. Þá geta gestir sett nafn sitt í lukkupott en í vinning er hönnun úr húsinu.
Ljósmyndastofan Ozzo býður myndatöku á vinnustofu sinni með jólaívafi og sprelli.
Dagskrá Fimmtudagur 20. nóvember
· Lifandi tónlist
· Maris, hönnunarklasi Suðurnesja
· Kommisarý hönnunarbúð
· Pop-up markaður hönnuða
· Opnar vinnustofur og smiðjur:
· Flugvirkjabúðir Keilis
· Spiral design
· Mýr design
· Agnes design
· Raven design
· Ozzo ljósmyndun
· Geosilica
· Ljósberinn
· Flingur design
· Hakkit – stafræn smiðja fyrir eldhuga
· Steinbogi kvikmyndagerð sýnir heimildarmyndir
· Geosilica kynnir nýjar kísilvörur
· Skapaðu skemmtilega jólamynd hjá Ozzo ljósmyndun – opin vinnustofa
· Fisland kynnir framleiðslu á fiskisnakki
Opið 20:00 – 22:00.
Eldey frumkvöðlasetur, Grænásbraut 506, 235 Ásbrú
Ljósmyndastofan Ozzo býður myndatöku á vinnustofu sinni með jólaívafi og sprelli.