Bygg
Bygg

Mannlíf

Afmæli: Sjötugir tvíburar
Fimmtudagur 30. janúar 2014 kl. 07:00

Afmæli: Sjötugir tvíburar

Tvíburarnir Ágúst Ingiþórs Ingason og Ingvi Ingiþórs Ingason eru 70 ára í dag 29. janúar og munu fagna því með vinum og ættingjum 31. jan.

Starfsferill Ágústs

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ágúst stundaði sjómennsku sem ungur maður frá Keflavík og lauk námi í Stýrimannaskólanum 1975. Hóf útgerð með föður sínum í nokkur ár. Upp úr 1976 flutti Ágúst til Noregs með tilvonandi eiginkonu sinni. Hann hóf nám í rafeindatæknifræði 1977 og lauk því með sóma.  Að námi loknu hóf Ágúst störf hjá Electrolux í Noregi sem fólst aðallega í stjórnun vélmenna. Þegar verksmiðjan var lögð niður upp úr 2006 hóf Ágúst störf  við endurnýtanlega orku í tengslum við loftræstikerfi og starfar þar enn.

Starfsferill Ingva
Ingvi  og Gústi slitu barnsskónum í Keflavík. Eftir skyldunámið fór Ingvi á námssamning í rennismíði hjá Vélsmiðjunni Óðni í Keflavík og lauk sveinsprófi 1965. Ingvi hóf nám í undirbúningsdeild Tækniskóla Íslands 1966 og lauk fyrrihlutanámi í tæknifræði. Í framhaldi hóf hann nám við Tækniskóla Álaborgar 1968 og útskrifaðist 1971 sem véltæknifræðingur með straumvélar (túrbínur) sem aðalfag.

Haustið 1971 hóf Ingvi störf hjá HF. Raftækjaverksmiðjunni í Hafnarfirði (RAFHA) og starfaði sem véltæknifræðingur um átta ára skeið með þáverandi forstjóra Axeli Kristjánssyni. Ingvi tók við forstjórastarfinu 1979 og gegndi því til 1989 en þá var grundvöllur brostinn og innlend framleiðsla gat engan veginn borið sig. Ríkið sem átti 33% eignarhlut í Rafha hafði ekki áhuga á breyttri starfsemi t.a.m. innflutningi og þjónustu. Í byrjun árs 1990 náðust samningar við Ingva og hluthafa Rafha um sölu á lager og nafni RAFHA með því skilyrði að nýja félagið annaðist þjónustu við eigendur Rafha tækja. Ingvi starfar enn við fyrirtækið sem framkvæmdastjóri, ásamt yngsta syni sínum. Rafha er nú með sína starfsstöð við Suðurlandsbraut 16 og Ármúla 15 (þjónusta og lager) í Reykjavík samtals 1400 m2.

Ingvi var félagi í JC í Hafnarfirði 1973-83 og var þar bæði ritari og gjaldkeri og einnig lögsögumaður fyrir Landsstjórn JC Ísland. Ingvi er senator nr. 43074 í  JCI. Ingvi var formaður Félags raftækjasala 1988-2004 sem er aðili að Kaupmannasamtökum Íslands. Í dag situr Ingvi sem gjaldkeri í aðalstjórn Kaupmannasamtaka Íslands. Fyrir framlag sitt til samtakanna var honum veitt gullmerki KÍ sem viðurkenningu fyrir vel unnin störf.

Fjölskylda Ágústs
Kona Ágústs er Borgny Seland f. 29.09.1946.
Börn: Karl Ove Seland Ágústsson f. 19.06.1978 giftur og á eitt barn; Elín Edda Seland Ágústsdóttir f. 25.06.1980 gift og á tvö börn; Kristin Seland Ágústsdóttir f. 27.08.1982 gift og á eitt barn og annað á leiðinni.


Fjölskylda Ingva
Ingvi kvæntist 05.03.1966 Sigríði Jónu Egilsdóttur f. 13.12.1947.  Þau slitu samvistum 2000.
Börn: Sólveig Heiða Ingvadóttir f. 12.01.1966 gift og á 3 börn; Kristinn Þór Ingvason f. 18.01.1969 giftur og á 2 börn með fyrrverandi konu sinni og 2 börn með núverandi konu sinni og einnig eitt barna-barn; Egill Jóhann Ingvason f. 08.12.1979 í sambúð.

Systkini Ágústar og Ingva

Ásrún Ingiþórs Ingadóttir f. 28.10.1940, röntgentæknir

Jóhann Ingiþórs Ingason f. 08.03.1945, sjálfstætt starfandi blikksmiður

Þórir Gunnar Ingason f. 16.10.1946, f.v. verkstjóri hjá hernum

Ætt
Foreldrar: Ingi Þór Jóhannsson f. 04.01.1916, d. 30.11.2010, útgerðarmaður frá Keflavík og Sigríður Narfheiður Jóhannesdóttir f. 20.11.2014, d. 05.05.2003, húsmóðir.

Ingi Þór er sonur Jóhanns Ingvasonar f. 1896, d. 1931, oddvita í Keflavík og konu hans Kristínar Guðmundsdóttir f. 1889, d. 1973, húsmóður og kaupkonu.

Sigríður er dóttir Jóhannesar Narfasonar f. 9.10.1889, d. 12.05.1660, sjómanns og Guðrúnar Kristjánsdóttur f. 17.12.1889, d. 03.08.1963, húsfreyju.

Ágúst og Ingvi halda upp á afmælið þann 31. jan. nk. – Boðskort hafa verið send út.