Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Afastelpa í starfskynningu á bæjarstjórnarfundi
Miðvikudagur 18. febrúar 2004 kl. 10:11

Afastelpa í starfskynningu á bæjarstjórnarfundi

Selma Rán, 3 ára barnabarn Jóhanns Geirdals bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ sótti bæjarstjórnarfund með afa sínum í gær. Selma Rún lífgaði verulega upp á fundinn og vakti athygli annarra bæjarfulltrúa og var haft á orði að hún væri í starfskynningu sem blaðamaður á bæjarstjórnarfundi. Víkurfréttir hafa ekki vissu fyrir því hvort sú litla hafi erft vinstri gen afa síns, en hún tók sig allavega vel út í bæjarfulltrúastól afans. Hún hlustaði af athygli þar sem afinn fór í ræðustól og ræddi um leikskólamál, enda málefnið henni skylt.

Myndin: Selma Rán fylgdist vel með öllu sem fram fór á bæjarstjórnarfundinum.

VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024