AF STAÐ á Reykjanesið: Þjóðleiðarganga - Almenningsvegur
Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 10. ágúst kl. 11 í boði Sveitarfélagsins Voga í umsjón sjf menningarmiðlunar.
Gangan hefst við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd. Gengin verður gömul þjóðleið, Almenningsvegur frá Kálfatjörn að Kúagerði um 6 km. Svæðið býr yfir minjum, mögnuðum sögum og fróðleik sem Sigrún Jónsd. Franklín mun miðla á leiðinni. Áætlað er að gangan taki ca. 3-4 klst. Með fræðslustoppum. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð. Rútuferð til baka. Ekkert þátttökugjald en rútugjald kr. 500, frítt fyrir börn.
Gangan er annar hluti af menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðum á Reykjanesskaganum sem farnar verða á tímabilinu frá 1.ágúst – 7. sept. ´08. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir ferð í hverju sveitarfélagi. Þegar búið verður að fara 3 - 6 ferðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá góð gönguverðlaun. Dregið verður í 6. ferð. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir. Sjá nánar um gönguferðir á www.sjfmenningarmidlun.is
Umsjónarmaður gönguverkefnis
AF STAÐ á Reykjanesið
Sigrún Jónsd. Franklín
[email protected]/6918828