AF STAÐ á Reykjanesið: 5. ferð, Selvogsgata
Boðið verður upp á fimmtu ferðina í maí, í gönguverkefninu, AF STAÐ á Reykjanesið. Gangan hefst laugardaginn 31. maí kl. 11. Gengið verður um hluta Selvogsgötunnar, gömlu þjóðleiðina milli Hafnarfjarðar og Selvogs. Um er að ræða 3.- 4. klukkustunda gönguferð frá Kaldárseli í áttina að miðbæ Hafnarfjarðar, endað í Lækjarbotnum
Til að komast á upphafsstað göngu er best að aka frá kirkjugarði Hafnarfjarðar eftir skiltum sem á stendur Kaldársel.
Á þessu svæði er margt að skoða m.a. Búrfell og Búrfellshraunið, hellar, sel, gömul fjárhús, hluti af fyrrum vatnsveitu Hafnarjarðar o.m.fl sem minnir á upphafstíð bæjarins. Hafnarfjörður minnist 100 ára afmælis á þessum tímamótum. Leiðsögumaður verður með í för og mun veita fróðleik um það sem fyrir augu ber á leiðinni. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir á eigin ábyrgð. Farið verður með rútu til baka að Kaldárseli. Rútugjald er kr. 500. Frítt fyrir börn.
Í göngunni verður dregið úr þátttökuseðlum þeirra sem hafa farið 3 af 5 gönguferðum. Í boði eru 3 vinningar, útivistarvörur frá Cintamani.
Allir velkomnir í göngu. Gönguferðin er í boði Hafnarfjarðarbæjar og sjf menningarmiðlunar. www.sjfmenningarmidlun.is