Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

AF STAÐ á Reykjanesið - Menningar- og sögutengdar gönguferðir í sumar
Fimmtudagur 7. maí 2009 kl. 13:24

AF STAÐ á Reykjanesið - Menningar- og sögutengdar gönguferðir í sumar


Síðastliðin þrjú sumur hefur verið boðið upp á gönguverkefnið AF STAÐ á Reykjanesið menningar- og sögutengdar gönguferðir með leiðsögn um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum. Ferðirnar hafa verið vel sóttar og áhugi fólks mikill á að kynnast náttúru og sögu Reykjanesskagans. Í sumar verður boðið upp á 12 ferðir. Í maí verða fjórar ferðir. Ferðirnar verða á laugardögum frá 9.- 30. maí og byrja kl. 11.

1. ferð laugardaginn 9. maí kl. 11, Selvogsgata
Gengið verður um hluta Selvogsgötunnar, hina gömlu þjóðleið milli Hafnarfjarðar og Selvogs. Um er að ræða 3.- 4. klukkustunda gönguferð frá Kaldárseli að Bláfjallavegi neðan Grindarskarða. Gengið er í helluhrauni, sem er ágætt yfirferðar og í láglendi. Á þessu svæði er margt að skoða, s.s Kaldárbotnar, Helgadalur, landnámstóftir, Valaból, Músarhellir, Mygludalir o.m.fl. Sjá nánar um ferðir á www.sjfmenningarmidlun.is

Ferðirnar taka yfirleitt 3 - 4 tíma með fræðslustoppum nema annað sé tekið fram. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð í ferðum. Hugmyndin er að göngufólk fái stimpil fyrir hverja ferð á þátttökuseðil. Eftir 6 -12 gönguferðir er hægt að skila seðli og vera með í potti sem dregið verður úr í síðustu göngu sumarsins. Þrír vinningar, m.a. útivistarvörur verða í boði.

Mæting í ferð er við upphafsstað göngu. Ekið verður með þátttakendur í rútu til baka. Þátttökugjald er kr. 1.500 nema annað sé tekið fram. Frítt fyrir börn. Hver ferð verður kynnt nánar þegar nær dregur og eins ef um breytingar er að ræða þá má sjá það á www.sjfmenningarmidlun.is 

---

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

VFmynd/elg - Úr einni af gönguferðum AF STAÐ um Ketilstíg.