Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

AF STAÐ á Reykjanesið - Ketilsstígur
Þriðjudagur 6. maí 2008 kl. 10:26

AF STAÐ á Reykjanesið - Ketilsstígur

AF STAÐ á Reykjanesið: 2. ferð, laugardaginn 10. maí, kl. 11, Ketilsstígur, Djúpavatnsleið – Krýsuvík, Sveinshús, 7 km.

Til að komast á upphafsstað göngu er ekin Krýsuvíkurleið frá Hafnarfirði að skilti þar sem á stendur Djúpavatn, beygt þar til hægri og ekið að skilti sem á stendur “Ketilsstígur”.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ketilsstígur er hluti þjóðleiðar milli Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur. Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa staðið fyrir því að láta stika leiðina. Gengið verður frá Móhálsadal, um Ketilinn í vestanverðum Sveifluhálsi og yfir hálsinn framhjá Arnavatni, niður á Seltún og síðan að Sveinshúsi ofan við Gestsstaðavatn. Svæðið býr yfir kyngimagnaðri náttúru, minjum og sögum sem leiðsögumenn munu miðla á leiðinni. Áætlað er að gangan taki ca. 3-4 klst. með fræðslustoppum. Auðveld leið en gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir á eigin ábyrgð. Akstur til baka kr. 500. Frítt fyrir börn.

Gangan er önnur ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða í maí ´08. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá útivistarvörur frá Cintamani. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir.

Gönguferðin er í boði Ferðamálasamtaka Suðurnesja og sjf menningarmiðlunar.

Nánari upplýsingar um ferðir:
www.sjfmenningarmidlun.is
[email protected]/gsm. 6918828