AF STAÐ á Reykjanesið - Hvalsnesleið 7 km
Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 7. september kl. 11. Mæting er við SBK hjá Duushúsum í Keflavík.
Ekið verður með rútu að Melabergi og gengið þaðan gömlu þjóðleiðina frá Hvalsnesi til Keflavíkur. Hluti leiðarinnar, vetrarleiðin, er vel varðaður en nú á að rekja elsta hluta götunnar, sumarleiðina, sem er enn vel mörkuð í landslagið. Leiðin býr yfir mögnuðum sögum og fróðleik sem Sigrún Jónsd. Franklín mun miðla á leiðinni. Hvalsnesvegur er á kafla innan varnargirðingar og hefur því ekki verið aðgengilegur í langan tíma. Áætlað er að gangan taki ca. 3 - 4 klst. með stoppum. Þátttöku- og rútugjald kr. 1500. Frítt fyrir börn. Gott er að hafa með sér nesti og góða skó. Allir eru á eigin ábyrgð.
Gangan er síðasti hluti af menningar- og sögutengdum gönguferðum um gamlar þjóðleiðir á Reykjanesskaganum sem farnar hafa verið á tímabilinu frá 1.ágúst – 7.sept. ´08. Þátttakendur hafa safnað stimplum fyrir ferð í hverju sveitarfélagi á þátttökuseðil og þeir sem hafa farið 3 - 6 þjóðleiðir getra verið með í potti sem dregið verður úr í Hvalsnesgöngunni. Þrír vinningar í boði frá Cintamani og Bláa Lóninu. Allir eru velkomnir í Hvalsnesgöngu.
Umsjónarmaður gönguverkefnis
AF STAÐ á Reykjanesið
Sigrún Jónsd. Franklín
www.sjfmenningarmiðlun.is
[email protected]/6918828