Af stað á Reykjanesið - gengið um Reiðskarð og Stapagötu
Lagt verður af stað í aðra göngu af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum 13. ágúst. Um skipulagningu gönguferðanna sjá Leiðsögumenn Reykjaness og Ferðamálasamtök Suðurnesja.
Gengið verður um Reiðskarð og Stapagötu sem er ca. 7 - 8 km leið. Lagt verður af stað frá Sundlauginni í Vogum kl. 11:00.
Gengið verður um Síkið að Reiðskarði. Rifjuð verður upp búseta og athafnastarfsemi undir Stapanum, huldufólks- og þjóðsögur af svæðinu. Haldið verður eftir gömlu þjóðleiðinni um Stapann, Stapagötunni og framhjá hinum þjóðsagnakennda Grímshól. Þaðan er óvíða víðsýnna um norðanverðan Reykjanesskagann. Komið verður niður að Stapakoti og staðnæmst við Innri-Njarðvíkurkirkju.
Þátttökugjald í ferðina er kr. 1.000. Hópnum verður ekið til baka að upphafsstað.
Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa gefið út göngukort “Af stað á Reykjanesið” og hafa jafnframt verið að stika gömlu þjóðleiðirnar. Leiðsögumenn Reykjaness sjá um fræðsluna og leiða hópinn. Reynt verður að gera göngurnar bæði skemmtilegar og fræðandi. Ferðirnar miðast við alla fjölskylduna og er áætlað að hver ganga taki ca. 4 klst. með leiðsögn og nestisstoppi. Boðið verður upp á kort þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 þjóðleiðir verður dregið úr kortum og einhver heppinn fær góð verðlaun. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þeir þátttakendur sem fengu kort eftir fyrstu ferðina eru minntir á að taka það með sér til stimplunar.