Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

AF STAÐ á Reykjanesið - gengið á laugardag
Föstudagur 23. maí 2008 kl. 09:56

AF STAÐ á Reykjanesið - gengið á laugardag

AF STAÐ á Reykjanesið: 4. ferð, laugardaginn 24. maí, kl. 11, Stórhöfðastígur, Djúpavatnsleið/ Hrútagjá – Krýsuvíkurvegur/Bláfjallaleið. 7 km
 
Upphafsstaður: Akið frá Hafnarfirði Krýsuvíkurleið og beygið til hægri við skilti sem á stendur Djúpavatn, akið Djúpavatnsleið í um 6 km að skilti þar sem á stendur Hrútagjá,
 
Stórhöfðastígur er hluti af  þjóðleið milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar. Gengið verður frá Hrútagjá og Stórhöfðastíg fylgt í Brunntorfur, að mótum Krýsuvíkurvegar og Bláfjallaleiðar. Svæðið býr yfir mikilli náttúru- og jarðfræðisögu sem leiðsögumenn munu miðla á leiðinni. Áætlað er að gangan taki ca. 3-4 klst. með fræðslustoppum. Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa látið stika leiðina. Frekar auðveld leið. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir á eigin ábyrgð. Akstur til baka kr. 500. Frítt fyrir börn.
 
Gangan er fjórða ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða í maí ´08. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá útivistarvörur frá Cintamani. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru beðnir um að muna eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir. Gönguferðin er í boði Ferðamálasamtaka Suðurnesja og sjf menningarmiðlunar.

Mynd/SJF - Fjallið eina.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024