Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Mannlíf

Af stað á Reykjanesið - Garðstígur-gömul þjóðleið
Þriðjudagur 12. ágúst 2008 kl. 15:06

Af stað á Reykjanesið - Garðstígur-gömul þjóðleið



AF STAÐ á Reykjanesið  3. ferð – Garðstígur-gömul þjóðleið



Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 17. ágúst kl. 11 í boði Sveitarfélagsins Garðs í samvinnu við sjf menningarmiðlun.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona


Gangan hefst við stóra skiltið við innkomuna í Garð, við Garðbraut. Gengið verður að Hólmsbergskirkjugarði. Garðstígur er gömul þjóðleið, um 6,5 km á milli Keflavíkur og Garðs. Svæðið býr yfir minjum, mögnuðum sögum og fróðleik sem Sigrún Jónsd. Franklín mun miðla á leiðinni. Áætlað er að gangan taki  ca. 3-4 klst. með stoppum. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð. Rútuferð til baka kr. 500. Frítt fyrir börn.



Gangan er þriðji hluti af sex menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar eru á tímabilinu 1.ágúst – 7. sept. ´08. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir ferð í hverju sveitarfélagi. Þegar búið verður að fara 3 - 6 ferðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá góð gönguverðlaun. Dregið verður í sjöttu ferð. Göngufólk er beðið um að muna eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir.



Umsjónarmaður gönguverkefnis


AF STAÐ á Reykjanesið


Sigrún Jónsd. Franklín


[email protected]/6918828


www.sjfmenningarmidlun.is

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25