AF STAÐ á Reykjanesið - Vatnsleysuströnd næstu helgi
Menningar- og sögutengd gönguferð verður sunnudaginn 12. ágúst kl. 11. Gangan hefst við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd. Genginn verður hringur frá Kálfatjörn um Þórustaðastíg, gömul þjóðleið, að Þórustaðaborg og Staðarborg sem eru gamlar fjárborgir og endað á Kálfatjörn. Svæðið býr yfir minjum og mögnuðum sögum og fróðleik sem leiðsögumaður Reykjaness munu miðla á leiðinni. Reynt verður að gera gönguna bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Áætlað er að gangan taki ca. 2-3 klst. með stoppum. Auðveld leið en gott er að vera vel skóaður. Allir á eigin ábyrgð. Í lok göngu verður Minjanefnd Vatnsleysustrandar með opið hús í Skjaldbreið, gömlu hlöðunni og Norðurkoti, gamla skólahúsinu sem er verið að gera upp á Kálfatjörn. Minjanefndin verður jafnframt með kaffisölu á staðnum.
Gangan er önnur ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða á tímabilinu frá 6.ágúst – 2. sept. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhver heppinn fær góð gönguverðlaun. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir.
Mynd: Staðarborg