Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Ævintýraganga fjölskyldunnar á Barnahátíð
Föstudagur 10. maí 2019 kl. 05:00

Ævintýraganga fjölskyldunnar á Barnahátíð

Ævintýraganga fjölskyldunnar á Þorbjörn við Grindavík fer fram á vegum Reykjanesbæjar í samstarfi við Gönguhóp Suðurnesja, Björgunarsveitina Suðurnes og Leikfélag Keflavíkur laugardaginn 11. maí kl. 10:30. Gangan er sett á laggirnar í tengslum við málþingið „Út að leika,“ og Barnahátíð í Reykjanesbæ. Gangan er ætluð allri fjölskyldunni og munu félagar úr Leikfélagi Keflavíkur sjá um að halda uppi góðri stemningu í göngunni. Þá munu félagar úr Björgunarsveitinni Suðurnes fylgja göngufólki alla leið. Fjölskyldur er hvattar til að fjölmenna og taka með sér nesti og góða skapið. Gangan leggur af stað frá bílastæðum við Þorbjörn.

Á málþinginu „Út að leika“ sem fram fer deginum áður, föstudaginn 10. maí frá kl. 13-15, í fyrirlestrarsal Keilis að Gænásbraut 910, Ásbrú, verður fjallað um frjálsan leik og útiveru barna og fjölskyldna en um samstarfsverkefni Reykjanesbæjar og Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, er að ræða. Meðal fyrirlesara þar verður Griffin Longley, ástralskur fjölmiðlamaður og frumkvöðull í öllu sem viðkemur útiveru og frjálsum leik barna. Griffin er stofnandi og framkvæmdastjóri Nature Play í Ástralíu.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024