Ætlar að sinna nýja hlutverkinu
Víkurfréttir fóru á stúfana og spurðu fólk af Suðurnesjum hvað það ætlar að gera um verslunarmannahelgina. Sigurður Vignir Guðmundsson ætlar að vera heima um helgina í faðmi fjölskyldunnar.
Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina?
Ég verð bara heima að með nýfædda strákinn minn.
Hvað finnst þér mikilvægast að taka með þér inn í helgina?
Er ekki bara best að taka með sér góða skapið.
Hver er besta minningin þín frá verslunarmannahelgi?
Á eina góða minningu frá því að ég var á landsmóti þegar eg var polli. Unnum til verðlauna í körfu, það var nokkuð fínt bara.