Ætlar að hlusta meira á konuna
Örvar Þór Kristjánsson, starfsmaður Vodafone og þjálfari meistaraflokks ÍR í körfubolta, gerir hér upp árið 2013.
Njarðvíkingurinn Örvar Þór Kristjánsson, starfsmaður Vodafone og þjálfari meistaraflokks ÍR í körfubolta, gerir hér upp árið 2013. Honum eru minnistæð góðverk fólks í garð þeirra sem minna mega sín og margir sem hafi það skítt. Honum finnst nauðsynlegt að breyta ímynd Suðurnesja.
Hvað stóð upp úr í fréttum ársins 2013 á Suðurnesjum?
Að heimildarmyndin um Örlyg Aron Sturluson kom út á þessu ári. Meistaraverk um fallega og frábæra manneskju. Þessi mynd hefur svo góð áhrif á alla. Einnig var stofnaður sjóður í tengslum við útgáfu myndarinnar sem hefur það að markmiði að styrkja börn frá efnalitlum fjölskyldum til íþróttaiðkunnar.
Hvaða Suðurnesjamaður var mest áberandi að þínu mati þetta árið?
Veit ekki alveg hvaða maður var mest áberandi en sá maður sem er ferskastur í minninu er Styrmir Barkarson sem safnaði rúmlega hálfri milljón fyrir þá sem minna máttu sín hérna á suðurnesjunum fyrir jólin. Svona atvik standa upp úr og það mætti vera meira um þessar jákvæðu fréttir í miðlunum.
Hvað var það jákvæðasta sem gerðist á árinu?
Margir sem eru tilbúnir að hjálpa náunganum og gera góðverk. Það má nefna Styrmi hér að ofan, Gunnhildur Vilbergsdóttir safnaði einnig og fleiri mætti telja. Þessar fréttir hreyfa alltaf við manni þar sem náungakærleikurinn ræður ríkjum, enda eins og ég kem að á eftir er allt of mikið af fólki sem á um sárt að binda. Fátækt er okkar samfélagsskömm.
En það neikvæðasta?
Hversu margir það eru sem eiga um sárt að binda á Suðurnesjunum. Hér er áþreifanleg fátækt og margir sem hafa það skítt. Vonandi horfir til betri vegar.
Hvað stóð upp úr persónulega hjá þér á þessu ári?
Það sem stóð uppúr hjá mér var fæðing yngri sonarins þann 6. júlí. Hvílíkur gleðigjafi og kærkomin viðbót við fjölskylduna okkar.
Ætlar þú að strengja áramótaheit?
Já, ég ætla að hlusta meira á konuna. Hún hefur nefnilega ansi oft rétt fyrir sér.
Hvað jákvæðu breytingar viltu sjá á Suðurnesjum á nýju ári?
Meiri jákvæðni í samfélagið og mun öflugra og fjölbreyttara atvinnulíf. Það þarf að breyta „ímynd“ Suðurnesjanna og það gerir það enginn nema við sjálf, íbúar svæðisins.
Hvaða Suðurnesjamanni hefurðu mesta trú á og hvers vegna?
Ætla að nefna ungan dreng sem að mínu mati er besti körfuboltamaður Dominos Deildar karla í körfuknattleik. Elvar Már Friðriksson, sem er allt í senn frábær íþróttamaður og manneskja. Þessi strákur er einstaklega mikil fyrirmynd og hefur sýnt það og sannað að aukaæfingin skapar meistarann. Það verður fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar í framtíðinni en ég hef gríðarlega mikla trú á að þessi strákur nái langt.