Ætla að styrkja fjölskyldu Stefáns Sölva
Freyja stendur fyrir góðgerðarhlaupi.
„Ég hef horft upp á eldri systur mína ganga í gegnum það erfiða verkefni að berjast með syni sínum. Hann fæddist þremur og hálfum mánuði fyrir tímann og við fæðingu vó hann 700 grömm. Hann fór svo niður í 600 grömm og var mjög hætt kominn og ástandið var frekar svart um tíma. En með hjálp góðra lækna er þessi litli frændi minn stútfullur af lífi og ást og það er yndislegt að horfa á hann vaxa og dafna,“ segir Freyja Sigurðardóttir, sem stendur fyrir góðgerðarhlaupi til styrktar ungum Suðurnesjamanni, Stefáni Sölva Fjeldsted.
Vill létta undir með fjölskyldunni
Stefán Sölvi varð eins árs 30. apríl en hann hefur meira og minna verið inni á Barnaspítala Hringsins síðustu mánuði vegna veikinda sem ekki er búið að greina að fullu. „Hann á erfitt með að nærast, heldur ekki höfði og getur lítið sem ekkert hreyft sig. Foreldrar hans hafa þurft að breyta sínu daglega lífi umtalsvert og við viljum létta undir hjá fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum með því að efna til þessa viðburðar,“ segir Freyja.
Margfaldar áhyggjur
Freyja rifjar upp stöðu systur sinnar og fjölskyldu hennar, sem á einnig tvo eldri syni, og hversu erfitt ástandið og álagið á fjölskyldunni var. „Að þurfa að skipta vöktum sem foreldrar, annað foreldrið heima í Keflavík til að sinna stóru strákunum og hitt keyrandi alla daga til Reykjavíkur til að vera á spítalanum og styðja við litla ungann sinn. Ofan á allt bættust við áhyggjur af fjárhagsstöðu, vinnutapi og fleiru,“ segir Freyja.
Hlaupahópur Röggu Ragg hafði áhrif
„Eftir að ég hljóp í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra með hlaupahópi Röggu Ragg þá get ég ekki hætt,“ segir Freyja. Góðgerðarhlaupið verður 3. maí og ætlar Þitt form með Freyju Sig að vera þar í fararbroddi. „Hlauparar renna úr hlaði kl. 10:00 en bæði verður hægt að skrá sig í einstaklingshlaup eða í sveitakeppni,“ segir Freyja og bætir við að gjald á hvern þátttakanda verði að lágmarki 2000 krónur. Allt fé rennur óskert í söfnunina fyrir Stefán Sölva. Boðið verður upp á léttar veitingar eftir hlaupið og veitt verða verðlaun fyrir fyrstu sæti í einstaklingskeppni og sveitakeppni. Freyja hvetur að sjálfsögðu alla til að taka þátt og gera daginn að skemmtilegum heilsudegi. „Látum gott af okkur leiða og sýnum samhug. Allir út að hlaupa!“
Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig geta haft samband í netföngin [email protected] og [email protected]. Reikningsnúmerið er:
542-14-408011 og kennitalan
131180-4119.
Einnig er hægt að skrá sig með því að smella hér: