HSS
HSS

Mannlíf

Ætla að prjóna lengsta trefil í heimi
Föstudagur 5. mars 2010 kl. 13:39

Ætla að prjóna lengsta trefil í heimi


Við setningu menningarviku í Grindavík um næstu helgi verður hafist handa við að prjóna lengsta trefil í heimi og jafnframt að fá það met skráð í heimsmetamót Guinnes. Áætlað er að verkið takið eitt ár og trefillinn verði tilbúinn á menningarvikunni 2011. Væntanlegir heimsmethafar eiga mikið verk fyrir höndum því því lengsti trefill í heimi er 54,29 km að lengd og var prjónaður að frumkvæði velgjörðarsamtaka í Wales. Þar tók rétt rúm þrjú ár að prjóna trefilinn sem þarf að uppfylla ákveðin skilyrði varðandi breidd og fleira til að fá heimsmetið staðfest.

Benný Ósk Jökulsdóttir, áhugakona um hannyrðir, átti hugmyndina að því að prjóna lengsta trefil í heimi sem yrði yfir 55 km og næði frá Grindavíkur til Reykjavíkur. Benný hvetur Grindvíkinga til þess að taka höndum saman. Hægt er að prjóna trefilinn í mismunandi litum og óteljandi einingum og sauma svo saman í lokin.

Hugmyndin er að á biðstofum, prjónakvöldum, skólum, leikskólum og fyrirtækjum verði hægt að grípa í prjóna til að slá heimsmetið og koma Grindavík í heimsmetabók Guinnes 2011.

Greint er frá þessu á www.grindavík.is




Bílakjarninn
Bílakjarninn