Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fimmtudagur 16. desember 1999 kl. 23:36

AÐVENTUSVEIFLA Í KEFLAVÍKURKIRKJU

Aðventusveiflan í Keflavíkurkirkju var haldin fyrir fullu húsi tvö sunnudagskvöld nú á aðventunni. Þriðja aðventukvöldið verður nk. sunnudagskvöld með annarri efnisdagskrá en tvö síðustu kvöldin. Söngvarar voru Birta Rós Sigurjónsdóttir, Ólöf Einarsdóttir, Einar Júlíusson, Rúnar Júlíusson, María Baldursdóttir og Einar Örn Einarsson. Hugvekju flutti Sr. Sigfús B. Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju söng nokkur lög. Poppband Keflavíkurkirkju lék undir, en það skipa Guðmundur Ingólfsson, Þórólfur Ingir Þórsson, Baldur Jósepsson og Einar Örn Einarsson. Einnig komu fram Þórir Baldursson og Baldur Þórir Guðmundsson. Stjórnandi tónleikanna var Einar Örn Einarsson organisti. Kór Keflavíkurkirkju verður á hátíðlegri nótum nk. sunnudagskvöld þegar hann mun syngja ásamt einsöngvurunum Guðmundi Sigurðssyni, Laufeyju Geirsdóttur, Margréti Hreggviðsdóttur og Ingunni Sigurðardóttur. Auk þess mun sjórnandi kórsins, Einar Örn Einarsson, syngja. Þá flytur séra Ólafur Oddur Jónsson hugvekju. Búast má við að bekkurinn verði þétt setinn í Keflavíkurkirkju á sunnudagskvöldið eins og síðustu sunnudaga þegar Aðventusveiflur kirkjunnar hafa verið haldnar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024