Aðventukaffi og jólamarkaður í Safnaðarheimilinu í Höfnum
Menningarfélag Hafnabúa býður í aðventukaffi og jólagjafamarkað þann 6. desember 2015, í Safnaðarheimilinu í Höfnum.
Kaffisalan verður opin og boðið verður upp á heimabakaðar kökur, vöfflur, kaffi og kakó ásamt smákökum fyrir börnin.
Jólagjafamarkaður verður inni í salnum þar sem handverks og listamenn víðsvegar af Suðurnesjunum koma saman og verða með fjölbreyttan og fallegan varning til sölu fyrir jólapakkann þinn.
Húsið opnar kl. 13.00 og verður opið til 17.30.
Allur ágóði Kaffisölunnar rennur til styrktar viðhaldi Kirkjuvogskirkju og safnaðarheimilisins í Höfnum.
Eftir einstaklega velheppnaða Hátíð í Höfnum á Ljósanótt vonast Hafnabúar að sjá sem flesta!