Krambúðinn 4-7 sept
Krambúðinn 4-7 sept

Mannlíf

Aðventugarðurinn opnar
Föstudagur 2. desember 2022 kl. 10:51

Aðventugarðurinn opnar

Nú hafa ljósin logað í fallega Aðventugarðinum í Reykjanesbæ um nokkurra daga skeið og lýst upp svartasta skammdegið. Á laugardaginn opnar garðurinn með skemmtilegri jóladagskrá og sölu á jólalegum varningi og kræsingum í jólakofunum. Garðurinn verður opinn alla laugardaga og sunnudaga í desember frá kl. 14-18 og á Þorláksmessu frá kl. 18-21 og þar geta íbúar og gestir átt saman notalegar stundir í aðdraganda jóla, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ. 

Loksins tímasett dagskrá

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Ef hægt er að segja að heimsfaraldurinn hafi leitt af sér eitthvað jákvætt má með sanni segja að Aðventugarðurinn sé eitt af því. Hann var settur á laggirnar í miðjum faraldri þar sem fjárhagslegt svigrúm skapaðist vegna viðburða sem hafði þurft að aflýsa. Vegna samkomutakmarkana var einungis um ótímasetta „pop-up“ viðburði  að ræða og því happa og glappa hvort fólk hitti á þá. Nú getum við loks boðið upp á tímasetta dagskrá í garðinum og því engin ástæða til að missa af neinu. Alla laugardaga og sunnudaga verður lifandi dagskrá í garðinum og verður hún auglýst í Víkurfréttum og á vefsíðunni Visitreykjanesbaer.is sem og á öðrum miðlum Reykjanesbæjar.

Ljósin tendruð á jólatrénu

Á fyrsta opnunardegi garðsins, laugardaginn 3. desember, verða ljósin tendruð á jólatrénu í Aðventugarðinum kl. 14:30. Það eru synir Grýlu og Leppalúða, sjálfir jólasveinarnir sem ætla að gera það eins og þeim er einum lagið. Það er upplagt að hefja daginn með því að taka þátt í Aðventugöngu sem hefst og endar í garðinum og vera svo viðstödd þegar ljósin á jólatrénu verða kveikt. Jólakofarnir verða á sínum stað og þar er hægt að festa kaup á skemmtilegum varningi, heitu súkkulaði og fleiru. 

Aðventusvellið opnar

Aðventusvellið sem opnaði í fyrra verður á sínum stað og þar gefst fjölskyldum einstakt tækifæri til að upplifa saman gleðilegar stundir með hressandi útivist og hreyfingu. Alltaf verður opið á svellinu þegar opið er í Aðventugarðinum og á ýmsum öðrum tíma einnig. Upplýsingar um opnunartíma og bókanir eru á adventusvellid.is

Best skreytta húsið og gatan

Fljótlega verður kynntur léttur leikur þar sem fólk getur sent inn tillögur að best skreyttu húsum bæjarins og verður fyrirkomulag hans kynnt á næstu dögum. Eru allir hvattir til að taka þátt í þessu skemmtilega uppátæki sem er fyrst og fremst til gamans gert en mikið er af fallega skreyttum húsum og götum í bænum og um að gera að taka rúnt og skoða skreytingarnar. 

Það er fjölbreytt jóladagskrá í boði í stofnunum Reykjanesbæjar og eru íbúar hvattir til að njóta alls þess sem boðið er upp á í bænum á aðventunni. Alla dagskrá er að finna á visitreykjanesbaer.is

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25