Aðgöngumiðar á þorrablót rjúka út
Forsala aðgöngumiða á þorrablót Suðurnesjamanna í Garði hófst í dag, 10. desember, á bensínstöð N1 í Garðinum og í verslun Sigurðar Ingvarssonar við Hafnargötu í Reykjanesbæ. Óhætt er að segja að Suðurnesjamenn séu sólgnir í þorramat og góða skemmtun, því miðar á viðburðinn rjúka út. Talsvert hefur verið bókað af miðum á þorrahátíðina og af viðbrögðum af miðasölunni í dag að dæma er ekki langt í að erfitt verið að koma fyrir hópum í þessu stæsta þorrablóti sem haldið hefur verið á Suðurnesjum í langan tíma.
Þorrablót Suðurnesjamanna verður haldið í Garðinum þann 23. janúar á nýju ári. Blótið verður haldið í íþróttahúsinu í Garði þar sem vandað verður til í mat, drykk og skemmtiatriðum og ekkert gefið eftir í gæðum og fjöri. Það eru Björgunarsveitin Ægir í Garði, ásamt Knattspyrnufélaginu Víði og Unglingaráði Víðis sem standa fyrir þorrablótinu en hagnaður af kvöldinu rennur til styrktar þessum félögum.
Á þorrablótinu verður glæsilegt hlaðborð þjóðlegra rétta í bland við glæsilega skemmtidagskrá. Þannig munu Hemmi Gunn og hljómsveitin Buff halda uppi fjörinu allt kvöldið. Söngsveitin Víkingarnir kemur á svið og það gera Óperudífurnar líka, þeir Davíð Ólafsson og Stefán Íslandi. Mummi Hermanns leikur þjóðleg lög undir borðhaldi og Árni Johnsen mun stjórna fjöldasöng.
Veislustjórn er í höndum Hemma Gunn, sem er ættaður frá Meiðastöðum í Garði. Fleiri skemmtiatriði eru í pípunum, en þorrablótið var auglýst í fyrsta skipti opinberlega í dag. Þá mun gleðisveitin Buff leika fyrir dansleik til kl. 03 um nóttina.
Boðið verður upp á sætaferðir með SBK fyrir hópa frá öllum bæjarfélögum Suðurnesja og úr höfuðborginni. Verði aðgöngumiða er stillt í hóf en miðaverð á Þorrablót Suðurnesjamanna í Garðinum verður kr. 6.500,-
Við viljum fá þig, fjölskyldu og vinnufélaga, starfsmannafélög og saumaklúbba, áhugamenn um góðan íslenskan mat, ykkur öll til að vera með og gera daginn að sannkallaðri Suðurnesjaveislu á þorra, segir í tilkynningu um þorrablótið sem send var til á fimmta hundrað einstaklinga í dag og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa.
Það má því búast við stórkostlegri skemmtun í Garðinum þann 23. janúar 2010.
Til að bóka miða fyrir hópa má hringja annað hvort í Þorstein Jóhannsson hjá Björgunarsveitinni Ægi í síma 896 7706 eða í Guðlaugu Sigurðardóttur hjá Knattspyrnufélaginu Víði í síma 663 7940, segir í tilkynningu.