Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Aðalsmerki liðs Reykjanesbæjar er skemmtilegheit
Fimmtudagur 17. september 2015 kl. 15:41

Aðalsmerki liðs Reykjanesbæjar er skemmtilegheit

Spurningaþáttur sveitarfélaganna á RÚV, Útsvar, hefur nú hafið göngu sína á nýjan leik og á föstudagskvöld kl. 20 mætir hið frækna lið Reykjanesbæjar til leiks og etur kappi við lið Seltjarnarness.

Lið Reykjanesbæjar er óbreytt frá síðasta vetri og er skipað þeim Baldri Guðmundssyni, Grétari Sigurðssyni og Guðrúnu Ösp Theodórsdóttur sem komust alla leið í 8 liða úrslit í vor þar sem þau töpuðu fyrir liði Reykjavíkur, eftir að hafa sigrað þau fyrr á keppnistímabilinu. Lið Seltjarnarness komst í undanúrslit í síðustu keppni þar sem þau töpuðu og einnig fyrir Reykjavík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Það má því eiga von á hörkukeppni þegar þessi tvö lið mætast og hvernig sem fer þá getum við treyst á góða kvöldskemmtun, þar sem aðalsmerki liðs Reykjanesbæjar er auðvitað hversu skemmtilegt það er, segir á heimasíðu Reykjanesbæjar.